Gjaldskrá

Gjaldskrá Bata sjúkraþjálfunar tekur mið af gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands og er skv. reglurgerð nr. 721/2009 með síðari breytingum og rammasamningi um sjúkraþjálfun dags. 28. september 2009

Gert er ráð fyrir að viðskiptavinir greiði fyrir þjónustu sjúkraþjálfara við hverja komu.

Greiðslur sjúkratryggðra fyrir sjúkraþjálfun frá 1. janúar 2011

 

Einstaklingsmeðferð

Almennir sjúklingar 2.930 kr.

Almennir sjúklingar vegna fyrirfram samþykktrar sjúkraþjálfunar kr. 1.674.

Aldraðir og lífeyrisþegar með óskerta tekjutryggingu og börn og unglingar yngri en 18 ára kr. 837.

Aldraðir og lífeyrisþegar með skerta tekjutryggingu kr. 837.

Aldraðir og lífeyris-þegar með skerta tekjutryggingu vegna fyrirfram samþykktrar viðbótarþjálfunar kr. 419.

Aldraðir og lífeyrisþegar án tekjutryggingar kr. 1.256

Aldraðir og lífeyrisþegar án tekjutryggingar vegna fyrirfram samþykktrar viðbótarþjálfunar kr. 837.

 

Hópmeðferð
Almennir sjúklingar 1.274 kr.

Almennir sjúklingar vegna fyrirfram samþykktrar sjúkraþjálfunar kr. 728.

Aldraðir og lífeyrisþegar með óskerta tekjutryggingu og börn og unglingar yngri en 18 ára kr. 364.

Aldraðir og lífeyrisþegar með skerta tekjutryggingu kr. 364.

Aldraðir og lífeyris-þegar með skerta tekjutryggingu vegna fyrirfram samþykktrar viðbótarþjálfunar kr. 182.

Aldraðir og lífeyrisþegar án tekjutryggingar kr. 546

Aldraðir og lífeyrisþegar án tekjutryggingar vegna fyrirfram samþykktrar viðbótarþjálfunar kr. 364.

Skoðunargjald
Sjúklingar greiða aukagjald við upphafsskoðun sem nemur tvöfaldri meðferð.

Forfallagjald
Nauðsynlegt er að afboða tíma í sjúkraþjálfun með a.m.k. sólarhrings fyrirvara, ellegar greiðir sjúklingur 2.000 kr. forfallagjald.
Ef um veikindi er að ræða þarf að afboða tímann fyrir klukkan 9:00 að morgni veikindadags.

Atvinnuslys
Tryggingastofnun greiðir að fullu fyrir meðferð eftir slys ef slysatilkynning og áverkavottorð liggja fyrir.
Ef þú hefur merkt við slysatryggingarákvæði á skattskýrslunni þarft þú ekki að greiða fyrir sjúkraþjálfun eftir slys við heimilisstörf.

Sjúkraþjálfun eftir bílslys
Tryggingafélag bifreiðar endurgreiðir hlut sjúklings. Ræddu við fulltrúa tryggingafélagsins og kynntu þér rétt þinn.

Sjúkrasjóðir
Mörg stéttafélög endurgreiða að hluta eða að fullu hlut sjúklings. Kynntu þér rétt þinn hjá þínu stéttafélagi.

 

Sjálfsæfingar í sal
Almennt verð
Elli- og örorkulífeyrisþegar
1 mánuður og/eða 10 tíma kort
4.000 kr.
3.000 kr.